×

Nýjar íbúðir eru komnar í sölu

Hamravellir

Byggingafélag Áshamars 42-48, Hamravellir ehf., var stofnað árið 2021 og gerir miklar kröfur um gæði bygginga og leggur ríka áherslu á öryggi og umgengni á framkvæmdasvæðum. Stjórn félagsins hefur áratuga reynslu úr byggingageiranum og íslensku viðskiptalífi en hana skipa þeir Gísli Johnsen og Ingi Ljóts auk Óskars og Þrastar Auðunssona.

Smiðirnir Ingi og Gísli eru eigendur Verklands ehf., stofnað árið 2002. Bræðurnir Þröstur og Óskar eru eigendur Trefja ehf., stofnað árið 1978. Eigendur Verklands og Trefja hafa starfað saman að fjölda verkefna allt frá árinu 1992.

Verkland

Aðalverktaki framkvæmda við Áshamar 42-48 er Verkland ehf. sem var stofnað árið 2002. Verkland sérhæfir sig í mannvirkjagerð, allt frá uppsteypu til lokafrágangs. Félagið hefur mikla reynslu í byggingariðnaði og leggur áherslu á að skila af sér byggingum í hæsta gæðaflokki. Verkland setur öryggi starfsfólks og umgengi á byggingarsvæðum í fyrsta sæti og viðhefur því strangt öryggis- og gæðaeftirlit á öllum athafnasvæðum en fyrirtækið notar gæðakerfið Ajour með það að markmiði að auka gæði og styðja við eftirlit.

Tendra

Aðalhönnuður Áshamars 42-48 er arkitektastofan Tendra. Stofan hefur mikla reynslu af hönnun mannvirkja og hefur á undanförnum árum hannað hundruð íbúða, bæði á Íslandi og í Noregi. Tendra vinnur samkvæmt hugmyndafræði straumlínustjórnunar (LEAN) með það að markmiði að minnka sóun og lækka kostnað. Stofan leggur áherslu á stöðuga upplýsingaöflun svo finna megi bestu lausnirnar hverju sinni og þannig hámarka virðisauka viðskiptavina.